Trúarlegt
01.02.2006 02:30:56 / siggiha

Mánaðar "annáll"

Já, það kemur sá tími í lífi hvers mannbarns að maður hugsar bara: "Hey, er ekki kominn tími á smá update hérna á bloggið mitt gamla góða?" Það má segja að sá tími sé, enn og aftur, kominn hjá mér.

Það hefur mikið verið að gerast hjá mér síðustu misseri.. Vá ég hef ekki bloggað síðan einhverntíma í byrjun desember... Jólin voru flott.. Til að gera langa sögu stutta þá fékk ég massa hitachi borvél, peysu, húfu og margt fleira í jólagjöf, síðan fóru mamma og pabbi út eftir jólin og ég sá um að halda fyrirtækinu gangandi (Rafþjónusta Guðmundar) ég er nú svoddan dugnaðarforkur! En síðan komu áramótin. Borðaði með Dagnýju heima hjá ömmu og afa hennar ásamt helling af skildmennum hennar OG bróðir mínum dýrindis kalkún og með því.. Var með smá gigg um nóttina uppí krikju ásamt bræðrunum, Gunna (trommara) og Benna (gítar/bassa/hljómborðs/trommu-leikara) sem eru, eins og ég, mjög miklir rokk elskendur. Að vísu eru þeir miklu meiri rokkara en ég en ég kem til með að ná þeim einhverntíma ;) En það var geðveikt, tókum frumsamin lög eftir Benna sem voru bara flott og svo heimsumból í rokk-stíl. En þetta var samt ekki eins og við vildum hafa það, illa æft og lítið sem ekkert undirbúið, en samt fegnum við mjög góðar undirtektir.. Iss, Benni var búinn að setja upp pro-tools upptökugræjurnar sínar og stilla allt inn en hann bara gleymdi að úta á "REC" áður en við stigum á svið og þess vegna eru engar leifar af þessu snilldar kvöldi nema bara lengst uppí minningarbankanum! En það er allt í góðu lagi.

Síðan fór maður bara að tjútta og tralla langt fram eftir nóttu með öðru kirkjunar fólki úr fíladelfíu og var það alveg rosalega gaman (að sjálfsögðu alveg blá-edrú, eins og vanalega;))

En síðan gerist ekkert merkilegt.. eitt lítið teiti heima hjá mér einhverntíma þarna fyrstu helgina eftir að skíolinn byrjaði eða eitthvað, skelli kannski inn myndum af því á eftir..

En síðan kom SNJÓR!!!!! Og ég fór og keypti mér nýja bretta plötu :D Rossignol Decoy heitir hún. Alveg mögnuð. Útilífs kynningarteymið er víst allt á svona plötum.. Hún átti að kosta 48þús en ég fékk 50%afsl. og síðan einhvern auka afsl og endaði hún hjá mér fyrir litlar 19þúsogeitthvað krónur!!!! :D alveg hreint kjarakaup.. Keypti mér síðan einhvern bretta varning, hlýfðarföt og fleiri og skellti  mér uppí fjöll daginn eftir.. það var alveg magnað.. ég og Dagný vorum að meikaða þarna uppí fjöllum þá daga sem snjórinn var... Ennnn síðan fór sjórinn og ég þurfti að hætta að fara veikur úr skólanum til að fara uppí fjöll :( Iss.. síðan hefur maður bara tekið því rólega í skólanum..

Þangað til miðvikudaginn í síðustu viku þá veiktist ég skyndilega og var heima miðvikud. og fimmtud. en var búinn að ákvðea að fara til eyja með Nýrri Kynslóð skóla starfinu á föstudaginn og vera fram á sunnudag svo að ég harkaði að mér og fór til eyja.. Það var alveg magnað!!! Hehehehe :haha: rúnlega 100 manns af öllu landinu! frábær félagskapur.. Þetta mót var hugsað svona til að láta mismunandi kirkjudeildir kynnast betur og fólk innan starfsins og byggja okkur upp fyrir komandi önn, trúarlega :) Ég kynntist alveg full af allskonar fólki, bæði rugludöllum eins og mér og síðan ósköp venjulega fólki eins og þér.. ;) En þetta var alveg geðveikt.. Kristný eyja búi tók alveg rosalega vel á móti okkur og á hún heiður skilin fyrir það ;) iss, það sem stendur samt mest uppúr er þegar ég sagði við Eyþór á sunnudeginum hvað mig langaði að fara í bara einn alveg massívan gannislag þar sem e´g myndi virkilega þurfa að reyna á mig og meiða mig!! Hanns agði bara "OK", tæmdi vasana sína og réðst á mig, kýldi mig í hausinn og þar fram eftir kötunum þangað til að ég var búinn að átti mig á því hvað var í gangi og skellti honum uppað vegg og skilaði honum þessum kjaftshöggum sem að hann hafði látið dynja á mér og var útkoman hjá okkur tveim, hausverkur og brákuð tá, ásamt úlnliðs meiðslum og fleiri mörum og marblettum.. Síðan vildi Hafliði skerast í leikinn og ég skellti honum niður og byrjaði bara að hamra í síðuna og magann á honum aftur og aftur og aftur og aftur og VÁ hvað þetta var gaman!!! En auðvitað vorum við allir að þessu í góðu ganni og kristilegum bróðurkærleika ;)

En hey.. síðan kom ég bara heim á sunnudaginn fárveikur eftir helgina, eftir að hafa sofið í ísköldum kjallara í hvítasunnukirkjunni í vestmannaeyjum, vegna þess að stelpurnar fengu öll góðu herbergin! svo að ég er ekkert ´buinn að fara í skólann.. er kominn með Bronkítis segir læknirinn.. en hey, maður bara biður til Guðs og verður heill ;)

uss marr, Dagný er bara á Kanarí :( búin aðv era þar síðan á fimmtudaginn :( en hún kemur heim núna á fimmtudaginn :D jess!! sakna þín ;)

 

en vá, þið hafið alveg örugglega ekki nennt að lesa þetta allt saman.. en mér er alveg sama :) ég elska ykkur samt..

 

bæbæ..


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.12.2005 18:01:05 / siggiha

Ný skoðanakönnun!

Hin kom svona út:

             

skoða pistilinn fyrir neðan


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.12.2005 01:38:20 / siggiha

svefn?? viltu bita af mér ófreskja?? HA?!

kominn tími á einn síðnætur pistil.. ég var að koma heim og nenni ekki að farað sofa strax, próf á morgun samt :S en HEY!!! svefn er fyrir stelpur... varla svaf napóleon mikið þegar hann gerði allt múmbó júmbó dótið sem hann gerði.. eða þá William Walles? hann gat ekki eytt dýrmætum tíma í að sofa á meðan hann var að finna gaurinn sem var ábyrgur á því a konan hans var aflífuð... ég held ekki.. Julius Cesar, Gengis Khan, Mel Gibson í patriot, Jesús Kristur!! þetta voru allt merkismenn sem höfðu margt annað að gera en að sofa!! við sofum ekki, við erum karlmenn, við typpum.

 EN... eins og ég áður sagði þá var ég bara að koma heim, var með dagnýju að passa út á kjalarnesi.. já, kjalarnesi :!: þá keyrir maður; Vogar-hafnarfjörður-garðabær-kópavogur-reykjavík-mosfellsbær-óupplýsturvegur- og svo, kjalarnes!!! þetta tekur sirka 45 mínútur en að sjálfsöðu á kol ólöglegum hraða, maður hefur margt annað betra að gera við tíma sinn en að keyra löglega.

 hehehe... við ákváðum að horfa á eina bíómynd eða svo.. opnuðum dvd skúffuna, fundum Boondog Saints sem er by the way MÖGNUÐ!!! en allavegana.. síðan á meðan dagný var að farað setja myndna í og sollis þá fór hún að útskýra fyrir mér hvað konan sem á húsið hefði verið að útskýra fyrri henni með sjónvarpið og allar rásirnar og sollis.. t.d: ef þið viljið horfa á íþróttir þá erum við með sýn og sýn+ og sollis, og ef þið viljið horfa á hitt og þeta þá erum við með þetta og þetta" og svo framvegis... og þá skaut ég inn einum laufléttum djók: "en hvað ef við viljum horfa á klám?" og um leið og ég sleppti orðinu tók dagný boondog saints diskinn úr hulstrinu og sagði: "nú, þá er það bara hér" og sýndi mér diskinn sem var undir boondog saints disknum og var það þá ekki einver sora klámmynd :P ég held ég hafi aldrei hlegið svona mikið.. eða ég hefði gert það ef börnin hefðu ekki verið sofandi... :D hahaha.. foreldrarnir að reyna að fela klámið sitt fyrir börnunum.. mér leið hálf illa að sitja í þessum sófa... brrr :S

en jæja.. síðan hélt ég bara heim á leið, sömu leið og áður nema bara aftur á bak... var að spyrna smá við dagnýju á leiðinni uppí grafarvog :) iss hún er algjör nagli lætur ekkert stoppa sig ;) síðan kom ég á brautina og voru þá allir ljósastaurar úti og allt svart bara.. og sömuleiðis í vogunum.. ótrúlega skrítið að keyra að þeim svona ljóslausum, alveg ósýnilegir frá brautinni, og það er ekki eins og að fólk taki eftir vogunum eitthvað þó að ljósin séu kveikt.. ég held að fólk vilji bara ekki líta á vogana.. það er hrætt.. allir sem búa í vogunum eru snarklikkaðir og fólk veit það að við finnum lyktina hræðslu svo að það reynir að keyra eins hratt og það getur fram hjá vogunum og reynir bara að gleyma okkur... ghettóinu.. 8)

 hehehe... jájá.. kom í vogana og ákvað að rúnta aðeins um þar... það var alveg magnað.. eins og einhver draugabær.. beið bara eftir því að eitthvað ógeðslegt skrímsli eða zombie kæmi út úr myrkrinu og stykki á mig :klikk:.. en það væri allt í lagi... ég er við öllu búinn með draugabanara vélina í skottinu og 9mm skammbyssu í hanskahólfinu 8) alveg satt.. ghost buster... en allt kom fyrir ekki.. að vísu sá ég einhverja skuggalega vera sem í fyrstu virtist vera uppvakningur frá miðöldum sem hafði úthverfan heila á stærð við köruboltahring en þegar betur var að gáð var þetta bara Gummi Krulla og Jói ninja á eftirlistferð.. "Hverfis gæslan"!!! þegar gummi og jói eru á vappi, þarf maður ekki að hræðast... ég spjallaði við þá og þar sem ég var búinn að taka fyrstu vaktina ákváðum við að þeir myndu klára þetta með smá aðstoð frá Bjarna sem er yfir hverfisgæslunni í vogagerði. þá fór ég bara heim og kveikti á nokkrum kertum og fór að kyrja.. en svo varð ljós!!!!

 sem leiðir mig aftur hingað.. að lyklaborðinu sem horfir alltaf á mig með þessu óútreiknanlega dulmáli.. hvað ætli það segji næst? hvert er leyndarmálið bak við lyklaborðið??? þeirri spurningu get ég ekki svarað en ég skil hana eftir hjá ykkur, góðir hálsar... þar til næst, sofiði rótt... mwúhAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHA!!!!!!!!!!!!

stay black!!!


» 3 hafa sagt sína skoðun

01.12.2005 14:49:56 / siggiha

lærdómur smærhómur

Úff.. ég bara nenni ekki að læra! ég ætti að vera að læra fyrir rafvélapróf sem ég er að fara í í morgun en ég er bara búinn að gera allt sem ég get til að komast hjá því..... var áðan að ræða launamál mín við mömmu... fór síðan að taka til í herberginu mínu... ég meina... TAKA TIL Í HERBERGINU?!?!?!?!?! iss.. ég er vanur að geyma þetta þangað til að dagný kemur til mín og láta hana gera það en ég bara nenni svo ekki að farað læra svo að ég tók til.. i'm not the half the man i used too be!!! :cry:

en jæja.. nóg um það, ég ætla að blogga bara eitthvað svakalegt svo að ég þurfi ekki að farað læra..

 ég fór í rafmagnsfræði próf í morgun, nennti ekki að læra undir það heldur... en það gekk bara vel ;) iss mar.. ég var að keppa í gær við leikni í undankeppni fyrir bikarinn... þetta var alveg æsispennandi leikur frá upphafi til enda...:) eftir framlengingu töpuðum við með EINU stigi 77-76..8| það er ekki mikið við því að gera.. bæði liðin áttu svo sem skilið að vinna þennan leik nema við áttum það aðeins meira skilið vegna þess að við grenjuðum ekki eins mikið og þeir!!!:klikk: en til hamingju Leiknir! veit ekki af hverju ég er að óska þeim til hamingju með þetta, ekki eins og þeir séu að lesa bloggið mitt.. snobb lið! geta ekki einu sinni gefið sér smá tíma til að kíkja inn í hugarheim þeirra sem þeir særðu svo djúpu sári með hrottalegum sigri sínum!! snobb, snobb, snobb og aftur SNOBB!!!:cry:

ok siggi, ekki missa þig, mundu hvað læknirinn sagði..... ekki fara yfirum!! anyways... kannski kominn tími til að fara að læra eitthvað? kannski bara smá..

stay black!


» 5 hafa sagt sína skoðun

21.11.2005 23:01:37 / siggiha

AAAAAAAAA

Ég er með eitthvað á bakinu!!!!! ég get svo svarið það!!!!!!! það er að skríða upp hálsinn á mér... NEI komið í HÁRIÐ!!!!!!   AAAAAAAAAAAAAAAAAAAAA......... mAGg!!!!!!!!

ég verð að fá mér bát

pís át


» 5 hafa sagt sína skoðun

21.11.2005 20:29:14 / siggiha

update

Jæja, ég held að það sé bara kominn tími á einn pistil fyrir ykkur dyggu aðdáendur..

Það hefur nú ekki svo rosalega mikið upp á daga mína drifið undanfarið. Á laugardeginum fórum við bræðurnir heim til einkaþjálfarans okkar og vorum að redda fyrir hann rafmagninu í skiptum fyrir annan mánuð í einkaþjálfun (að andvirði 50þús kall) það er nú alls ekki slæmur díll skal ég segja ykkur :o allavegana er ég himin lifandi.. :D þegar við vorum búnir að vinna fór ég til hennar Dagnýjar sem stóð í ströngu við að undirbúa afmælið sitt, búin að fara í ríkið og blanda í tvær bollur og ... tja, þið þekkið okkur, djús og djamm allar helgar 8) ........... já nei

hún var þarna búin að útbúa léttar veitingar sem voru svo ekkert það léttar.. allavegana eftir teitið þá var ég ekkert ýkja frár á fæti :S gæti hafa borðað aðeins of mikið.. en það er í lagi, fer bara og hristi þetta af mér hjá einkaþjálfaranum ;) hehehe.. en allavegana.. um kvöldið mættu svo í kringum 30-40 manns í mjög svo vel heppnað teiti sem varði langt fram eftir nóttu.. daginn eftir var síðan komið að afmælinu sjálfu og þar með aðal veisluhöldunum, sem voru fyrir fjölskylduna.. úff.. mamma hennar dagnýjar er kokkur og bakari á heimsmælikvarða (finnst mér) og bakar alveg guðdómlegar rjómakökur... :P *slef* úff ég fæ vatn í munninn.. það má segja að ég hafi fengið mér allavegana einum of mikið að sætindum þessa helgi..

svo sem ekki mikið meira að segja.. bara skólinn í dag sem var alveg svaðalega fínn.. mar er að vísu farinn að hlakka verulega mikið til að komast í jólafrí.. tss, búinn að fá nóg þessa önn.......

jæja þetta verður ekki lengar að sinni, þarf að farað skella mér á körfubolta æfingu með bandbrjáluðu þrótturunum í vogunum.

þar til seinna, lifið heil


» 4 hafa sagt sína skoðun

16.11.2005 23:43:11 / siggiha

vasaljós

"1. hluti, málsgrein 1. Hefst nú lesturinn."

uss hver man ekki eftir þessu? stafsetningarprófin frægu í grunnskóla... veit ekki af hverju mér datt þetta í hug.. ég er mjög greinilega leiðnlegur persónuleiki, ekki reyna að kynnast mér.

Dagur íslenskrar tungu er í dag góðir hálsar. :D sirka hálf klst eftir af honum og skulum við nýta hann vel og nota spari íslenskuna okkar það sem eftir er af þessum góða degi. menntamálaráðherran (frúin) kom til okkar í skólan í dag og hélt alveg hreint svakalega ræðu sem hún flutti af miklu öruggi og jafn framt hlýju í garð nemenda og starfsliðs skólans sem var alveg afskaplega notalegt á svona köldum miðvikudags morgni.:) held að hún hafi sagt "frábær skóli" amk. 15 sinnum á 3 mín. ekki slæmt..

í kringum tvö leitið létu strákarnir sjá sig í skólanum og voru að taka upp allt fyrir aurinn. einhver gella fékk 10000 kall fyrir að vera svona 5 mín að éta EITT kindarauga!!8| piss.. og svo var einhver gaur sem gat ekki einu sinni étið 2 án þess að choka og æla þeim út úr sér á 15 sek... fyrir 5000 kall myndi ég taka 3 og jafnvel 1 í nesti. alltaf gott að fá smá auka aur..

hva haldiði? eldaði kallinn ekki bara þessa dýrindis máltíð fyrir bróður sinn og ömmu í kvöld?:haha: hamborgarar með öllu tilheyrandi, all svakalegt.. síðan skellti mar sér bara á æfingu og hristi þetta af sér einn tveir og þrír:!:

ég ætla mér nú ekkii að hafa þeta mikið lengra að sinni.. ætla nú samt að skella inn einni mynd sem mér fannst nokkuð skondið.. margir sem ættu kannski að fara aðeins að athuga sinn gang í þessum málum ;)    njótið


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.11.2005 01:28:22 / siggiha

Góðan dag góðir hálsar

dag? það er nú ekki hægt að kalla þetta dag þar sem að klukkan er langt gengin 2.. svo að þetta er nótt í þeirri merkinu.. en þetta er nú samt dagur það má segja að klukkan sé að ganga 2 um morgun.. er þá ekki til nein nótt? er sólahringurinn bara: morgun-dagur-morgun? er þetta bara eitt stórt samsæri? lifum við í svikumyllu, svokallaðri? þessum spurningum er nú ekki auð svarað.. en ef þú ert með eitthvað svakalegt svar við þessu öllu saman þá skaltu bara láta það flakka í skoðanir..

en spurningin sem brennur á allra vörum núna þessa stundina er líklegast: er hann kominn aftur? er risinn vaknaður og tilbúinn í slaginn? er KJELLINN MÆTTUR?????        þessari spurningu er nú ekki auð svarað heldur.. við verðum nú bara að sjá til..


» 4 hafa sagt sína skoðun

30.05.2005 16:36:36 / siggiha

hóhó

Góðan dag góðan dag!!

Datt í hug að skella inn einum laufléttum pistli, aðeins að láta ykku brjáluðu aðdáendur mína vita af mér 8) hehehe.. sure..

Ég er hérna heima hjá mér í veikindafríi frá vinnunni vegna þess að það þurfti að klippa af tánöglinni á stóru-tá vegna þess að það var búið að vera að grafa svo mikið í tánni á mér:S var deyfður á 3 stöðum og allt.. ekki það að ykkur sé ekki alveg sama:!: hehe.. konan sem var að deyfa mig var einhver nemi eða eitthvað og áður en hún byrjaði þá hringdi hún í einhvern lækni og var að spurja hann hvernig hún ætti að deyfa mig!! uss.. ég byrjaði að svitna!:cry: ég heyrði hana bara segja: "Já, ég hef sko deyft einu sinni áður" og síðan byrjaði hún bara að taka "sprauta 103" í gegnum símann.. brr :| en þetta var svosem allt í lagi.. maður harkar þetta auðvitað af sér eins og allt annað er þaggi? ;) ég held það nú :P  en já.. í grófumn dráttum þá er dagurinn búinn að vera bara vinna, læknir, heim og sofa..

ég ætla ekki að hafa þetta mikið lengra að sinni.. ég fer alveg örugglega að setja eitthvað meira dót inná síðuna, myndir og svoleiðis.. eða eitthvað..

hugs and kisses


» 6 hafa sagt sína skoðun

23.05.2005 22:50:46 / siggiha

Aham

Útkoman úr skoðanakönnuninni sem er búin að vera í gangi í tja, næstum því ár, var alveg afgerandi og í kringum 100 manns tóku þátt. Spurt var hvort ég ætti að byrja aftur að blogga og sögðu 90% "Já" en öldungis 10% "Nei". Út frá þessu getum við séð að allt að 90% þjóðarinnar elska mig en ekki nema 10% ekkielska mig.. en þeim líkar samt vel við mig.. yub.. svona er þetta..

En burt sé frá því þá er dagurinn búinn að vera svona skítsæmilegur ef maður getur orðað það svo.. var að vinna frá hálf9 til hálf 7.. ég vinn hjá pabba sem er rafvirki.. ég er einmitt að læra rafvirkjun í FS svo að þetta er hluti af þeim samningstíma sem ég þarf að taka í skólanum.. ég er bara mjög sáttur við þetta.. skemmtilegt og svona "krefjandi" starf :) síðan eftir vinnu fór ég á lofgjörðar æfingu inní kirkjunni minni, Veginum og var búinn það 8 og fór heim. síðan er ég bara búinn að vera að hanga í sjónvarpinu og tölvunn.. og núna er mamma að nudda á mér axlirnar :haha:

en ég ætla nú ekki að hafa þetta lengra þetta skiptið..


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.05.2005 23:27:12 / siggiha

hmm..

Jæja.. þá er komið að því.. the moment you've all been waiting for!!! neeh, örugglega ekki en samt.. ég ætla að gera tilraun með að byrja að blogga aftur.. sjáum til hvernig það gengur ;) dagný er búin að vera svo dugleg að væla í mér og skoraði á mig með því að opna sína eigin síðu (http://blog.central.is/dagny88) já, ég skil ykkur alveg, ég er hreint út sagt ómissandi í bloggstríðinu mikla þó ég segi sjálfur frá.. aha aha.. en jæja.. þetta er ágætist opnunar pistill.. eða tja.. endur opnunar..

ég ætla að fara að skoða allt nýja og skemmtilega dótið sem að þeir hjá blog.central.is eru búnir að setja hérna inn fyrir okkur (vúbbídú) ég er svooo spenntur!


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.09.2004 14:35:01 / siggiha

Hmm...

A madur ad farad blogga aftur? Hvad finnst ter?

» 6 hafa sagt sína skoðun

12.07.2004 16:44:22 / siggiha

Quarashi aðdáendur ath

Ég er að selja geisladisk með Quarashi - xeneizes. Diskurinn er ennþá í plastinu og alles!! Kostar litlar 1500kr. Fyrstur kemur fyrstur fær! Hafa samband við mig.

» 0 hafa sagt sína skoðun

08.07.2004 23:03:57 / siggiha

Tíminn flýgur

Jæja.. þá er komið að því loksins!! Ekki nema klst í að ég fari út á flugvöll að ná í Dagnýju :D Tengdó eru á leiðinni hingað núna og svo verður bara farið uppá völl rétt fyrir 12 :) ohh ég hlakka svo til :haha: jæja, farinn að.. hugleiða.. eða eikkað ;)

» 0 hafa sagt sína skoðun

07.07.2004 20:06:53 / siggiha

Daddarararaaaaa

Í dag er dagurinn sem allir geta sagt: „Á morgun kemur Dagný heim“ :!::!::haha: yeah!! bara koma þessum skilaboðum á framfæri. Takk fyrir mig.

» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3